Það eru oftast einfaldar skýringar á því ef að kröfur berast ekki frá banka. Fyrst af öllu þarf að vera viss um að búið sé að sækja kröfur í banka frá því að bankinn stillti allt sín megin en Manor sækir kröfur tvisvar á sólarhring. Ef það er ekki skýringin er gott að fara í gegnum þessi atriði.
Manor Collect þarf að vera rétt upp sett.
- Er kröfuhafinn skráður í Manor og með rétta kennitölu?
- Er búið að stilla réttan banka undir Kröfuhafi -> Almennar viðskiptakröfur -> Stillingar kröfuflokks ?
- Ef þú skráðir auðkenni, er það rétt skráð í stillingar kröfuflokks? (ath að ef ekkert er skráð eru allar kröfur sóttar óháðar auðkenni)
Bankinn þarf að vera rétt upp settur.
- Er búið að hafa samband við bankann og tilkynna um að þú sért nú innheimtuaðili fyrir þennan kröfuhafa?
- Er örugglega búið að skrá þig sem innheimtuaðila fyrir þennan kröfuhafa í kerfum bankans?
- Er buið að stilla öll auðkenni kröfuhafans þannig að kröfur berist til þín?
- Er réttur dagafjöldi skráður þannig að kröfurnar merkist í milliinnheimtu á réttum tíma? Oftast daginn eftir eindaga. (MI merking)
Bókhaldskerfi kröfuhafans þarf að vera rétt upp sett.
- Er hann að stofna kröfur með sama hætti og áður?
- Berast kröfurnar hans í banka?
- Ef það átti að skipta um auðkenni (gert ef kröfuhafi er að færa sig frá öðrum innheimtuaðila) þá þarf hann að passa að stofna kröfurnar inn á nýja auðkennið og stilla nýja auðkennið inn í bókhaldskerfið sitt.
Annað sem getur valdið kröfuleysi:
- Allar kröfur kröfuhafans eru í skilum og því koma engar kröfur í innheimtu. Gerist stundum t.d. hjá húsfélögum.
- Kröfur eru ekki sóttar stöðugt í banka heldur á ákveðnum tímum. Kröfur berast ekki þess á milli.
Ef allt ofangreint er staðfest þá er hugsanlegt að tæknileg bilun sé að valda kröfuleysi frá viðkomandi banka. Slíkt ástand getur skapast ef innheimtuaðili er nýr og bankatenging nýkomin á og/eða ef einvhers konar tæknileg bilun kemur upp. Það er afar sjaldgæft en ef grunur leikur á því er best að hafa samband við þjónustuver Manor í síma 546-8000 eða sendur póstur á adstod@manor.is og við könnum málið strax.