Að flytja færslur á milli mála

Breytt Sun, 17 Apr, 2022 kl 1:35 PM

Það er einfalt að flytja færslur á borð við tíma, akstur, vörur eða kostnað á milli mála. Þá er farið í málið þar sem færslan sem á að færa er staðsett og farið inn í t.d. tímafærslur.


 

Þegar þangað er komið má sjá lista af tímafærslum. Þar hakar þú við þær færslur sem þú vilt flytja smellir svo á hnappinn Flytja.




Þá kemur upp viðmót sem spyr hvert færslan eigi að flytjast.




Hér þarft þú að velja hvert færslurnar eigi að flytjast, svo er smellt á Flytja hnappinn.



Þá er færslan flutt og þú færist yfir á yfirlit yfir tímafærslur í málinu sem þú fluttir færsluna yfir á. Þannig getur þú séð að færslan fluttist sér á réttan stað.



Er hægt að flytja reikningsfærð atriði?

Nei það er ekki hægt. Hafi færsla (tími, akstur, vara, kostnaður) verið reikningsfærð í tilteknu máli þá er ekki hægt að færa hana yfir á annað mál. Þetta er gert til þess að skapa rétta sögu í skráningu og útgáfu reikninga. Það er hins vegar lítið mál að afrita slíkar færslur yfir á önnur mál.


Ef reynt er að flytja þegar reikningsfærð atriði kemur viðvörun og ekki er mögulegt að klára flutninginn. Það er þó hægt að klára flutning á óreikningsfærðum færslum ef margar voru valdar og einhverjar þeirra óreikningsfærðar.


save image




Var þessi grein gagnleg?

Það er frábært!

Þakka þér fyrir álit þitt

Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg

Þakka þér fyrir álit þitt

Láttu okkur vita hvernig við getum bætt þessa grein!

Veldu að minnsta kosti eina af ástæðunum
Staðfesting á CAPTCHA er nauðsynleg.

Viðbrögð send

Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina