Það er einfalt að afrita færslur á borð við tíma, akstur, vörur eða kostnað yfir á annað mál. Þá er farið í málið þar sem færslan sem á að færa er staðsett og farið inn í t.d. tímafærslur.
Þegar þangað er komið blasir við listi af tímafærslum. Hér hakar þú við þær færslur sem þú vilt afrita og smellir svo á hnappinn Afrita.
Þá kemur upp viðmót sem spyr hvert færslan eigi að afritast.
Hér þarftu að velja hvað þú vilt að gerist með tímasetningu á færslunum.
- Skrá á daginn í dag
- Þá færast færslurnar yfir á nýja málið með nýjum tímasetningum sem yrðu dagurinn í dag og klukkan núna.
- Halda dagsetningum óbreyttum.
- Þá færast færslurnar yfir á nýja málið með sömu tímasetningum og eru á færslunum núna.
Því næst velur þú hvert þú vilt flytja færslurnar - á hvaða mál.
Svo smellir þú á Afrita hnappinn.
Þá er færslan afrituð og þú færist yfir á yfirlit yfir tímafærslur í málinu sem þú afritaði færsluna yfir á. Þannig getur þú séð að færslan afritaðist sér á réttan stað.
Er hægt að afrita færslur sem búið er að reikningsfæra?
Já það er ekkert mál. Afritun felur ekki í sér neina breitingu á færslunum sem verið er að afrita heldur verða til nýjar færslur sem eru eins og þær sem fyrir voru.
Var þessi grein gagnleg?
Það er frábært!
Þakka þér fyrir álit þitt
Því miður! Við gátum ekki verið hjálpleg
Þakka þér fyrir álit þitt
Viðbrögð send
Við kunnum að meta fyrirhöfn þína og munum reyna að laga greinina